Glæsileg íbúð í nýlegu lyftuhúsi á Adeje, rétt fyrir ofan hraðbraut. Byggingarár 2018.
Gistirými fyrir 4-6 pers. og frítt WiFi. Í sameign hússins er infrared sauna, heitur pottur, líkamsrækt og sundlaug.
Tvö svefnherbergi annað með hjónarúmi og hitt með 2x 90cm rúmum sem hægt er að setja saman. Svefnsófi í stofu.
Tvö salerni með sturtu, og svalir meðfram stofunni og öðru herberginu. Stofa með svefnsófa þar sem barn gæti sofið. Opið á milli stofu, eldhúss og borðstofu.















Leiguverð er 595€ vikan + 80€ þrif. Um jól, áramót og páska er lágmarks leigutími 2 vikur og leiguverð 140€ nóttin. Staðsetning er hér
Innritun er kl 16:00 og brottför kl 12:00.
Lausar dagsetningar má sjá í dagatalinu hér fyrir neðan. Vinsamlegast bíðið eftir staðfestingu frá okkur um að tímabilið sem óskað er eftir sé laust.