Glæsilegt þriggja stjörnu íbúðarhótel staðsett alveg við Las Vistas ströndina og Avenida de Las Americas (Laugaveginn). Frábær staðsetning og stutt í alla þjónustu.
Þrjár stærðir af íbúðum; stórar stúdíó íbúðir, íbúð með 1 svefnherbergi og íbúðir með 2 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum. Loftkæling og wifi í öllum íbúðum. Stórar svalir eða terraz. Stór og flottur sundlaugargarður með tveimur sundlaugum, önnur upphituð. Veitingastaðir og barir allt um kring.
Ódýrasta tímabilið er eftir páska og til byrjun júlí og dýrast frá miðjum desember til miðjan janúar. Verð á stúdíó íbúð pr viku gæti því verið allt frá 805€ til 1.410€ og íbúð með tveimur svefnherbergjum frá 1.275€ – 2.095€ pr viku. Lágmarks leigutími er vika, 2 vikur yfir jól og áramót.
Íbúðirnar eru allar í einka eigu og því ekki um hefðbundna hótelgistingu að ræða, en þvottavél í öllum íbúðum og skipt á rúmum og handklæðum einu sinni á tímabilinu, vikulega ef tímabilin eru lengri.
Sýnishorn stúdíó íbúð
Sýnishorn stúdíó íbúð
Sýnishorn stúdíó íbúð
Sýnishorn af íbúð með einu svefnherbergi
Sýnishorn af íbúð með tveimur svefnherbergjum