Sundlaug

Ný uppgerð falleg íbúð á La Caleta Adeje – Einungis leigð til 3ja mánaða eða lengur!


Ný uppgerð falleg íbúð á La Caleta Adeje. Laus strax í ágúst 2026!

Falleg íbúð með einu svefnherbergi og svefnsófa í stofu. Staðsett í snyrtilegum lokuðum íbúðarkjarna og bílastæði fylgir. Íbúðarkjarninn er í fallega þorpinu La Caleta á Adeje þar sem margir af vinsælli veitingastöðum Adeje eru.

Íbúðin er nýuppgerð og allt glænýtt í íbúðinni, hvort sem er húsgögn eða borðbúnaður og eldhús aldrei verið notað. Fínt baðherbergi með sturtu.

Útsýni til fjalla og yfir sundlaugagarðinn sem er með fallegum trjám og gróðri. Morgun og eftirmiðdagssól á svölunum.

Complexið er allt til fyrirmyndar og mjög snyrtilegt, rólegt svæði og upphituð sundlaug,

Íbúðin er á sölu og því einungis hægt að gera 3ja mánaða leigusamning í senn, með möguleika á að framlengja um aðra þrjá mánuði. Leiguverð 2.100€ á mánuði og allir reikningar innifaldir.

Ætlast er til að gestir sýni öðrum íbúum kjarnans tillitssemi. Hávaði eftir kl 23 er með öllu óheimill. Staðsetning er hér

Vinsamlegast fyllið inn í reitina hér fyrir neðan til að senda fyrirspurn.