Villa Finlandia

Villa Finlandia


Stór glæsileg 5 svefnherbergja villa sem hefur farið í miklar endurbætur 2024. Frábær staðsetning, rétt fyrir ofan hraðbrautina á milli Las Americas og Adeje. Rúmar 11 manns í rúmum + beddi fyrir einn og því segjum við að sé svefnpláss fyrir 11-12 manns. Húsið er staðsett rétt við Siam Park og því stutt í alla þjónustu.

Húsið er um 300fm og útisvæðið í kring svipað að stærð og útsýni í átt að Siam Park, Los Cristianos og Las Americas. Undir stórri “pergolu” er stórt borðstofuborð og stólar, gasgrill, vínkælir ofl. Upphituð einka sundlaug og útisturta með heitu og köldu vatni, ásamt sólbekkjum og sófasett í forsælu.

Á aðal hæð er nýtt fullbúið eldhús, rúmgóð stofa með flatskjá, borðstofa og salerni á milli eldhúss og borðstofu.

Þrjú svefnherbergi eru á mið hæðinni, öll með tvíbreiðum rúmum og beddi í einu þeirra, ásamt tveimur baðherbergjum með sturtum.

Á efstu hæð eru tvö svefnherbergi, annað með baðherbergi með sturtu. Bæði herbergi eru með tvíbreiðu rúmi og í öðru er líka 90 cm rúm.

Leiguverð er 800€ pr nótt + 390€ þrif. Um jól & áramót er lágmarks leigutími 2 vikur, páska 10 dagar, og leiguverð 1.040€ nóttin + þrif.

Lausar dagsetningar má sjá í dagatalinu hér fyrir neðan.  Vinsamlegast bíðið eftir staðfestingu frá okkur um að tímabilið sem óskað er eftir sé laust. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir um dagsetningar sem merktar eru í skoðun yfir vetrartímann og við könnum málið. Ætlast er til að gestir sýni öðrum íbúum hverfisins tillitssemi. Hávaði eftir kl 23 er með öllu óheimill.

Staðsetning er hér

Innritun er kl 16:00 og brottför kl 10:30.

Loading...
 
-
Laust
 
-
Bókað
 
-
Í skoðun
·
 
-
Brottför/Koma

Nafn (required):

Email (required):

Símanúmer (required):

Komudagur (required):
...

Brottfarardagur (required):
...

Heildar verð með þrifum, fyrir valdar dagsetningar (required):
0,00 

Verð á þrifum (required):
0,00 

Cleaning Fee:

Fullorðnir (required):

Börn (required):

Nánari skilaboð og aldur barna:

Ég er ekki vélmenni – skrifið stafina eins í gluggann To show CAPTCHA, please deactivate cache plugin or exclude this page from caching or disable CAPTCHA at WP Booking Calendar - Settings General page in Form Options section.

Hægt er að senda fyrirspurn um dagsetningar merktar “Í skoðun” hér