Las Flores

Las Flores Lúxus á Adeje


Ný uppgerð lúxus íbúð fyrir tvo fullorðna á frábærum stað á Adeje. Íbúðin er með einu svefnherbergi og stórum svölum með stórbrotnu sjávarútsýni. Útgengt á svalir frá bæði svefnherbergi og alrými. Staðsett á efstu hæð með rafstýrðum markísum. Magnað sjávarútsýni í lokuðum íbúðarkjarna rétt við Playa del Bobo.

Íbúðin er á efstu hæð í lyftu húsi og bílastæði við innganginn. Sundlaug og sólbaðs aðstaða.

Salerni með sturtu og þvottavél. Fullbúið eldhús með uppþvottavél og auka búr gegnt eldhúsi þar sem meðal annars er góður vínkælir. Tvö stór sjónvörp, eitt í svefnherberginu og hitt í stofunni, íslenskar sjónvarpsstöðvar og internet.

Loftkæling í stofu og svefnherbergi. Rafstýrðar gardínur og ledlýsing í lofti í allri íbúðinni með fjarstýringum. Fjarstýrðir hátalarar í öllum loftum, úti og inni.

Á svölunum eru borð og stólar út frá svefnherberginu, og stofu megin er sófasett (2+1) og borð þar sem hægt er að dáleiðast af bæði sólarupprás og sólsetri.

Lágmarks leigutími er ein vika og leiguverð misjafnt eftir árstíma. Frá 1.maí – 1. október er verðið 125€ nóttin + þrif. Á veturna er leiguverð 140€ nóttin + þrif.

Um jól & áramót er lágmarks leigutími 2 vikur, páska 10 dagar, og leiguverð 215€ nóttin + þrif.

Ætlast er til að gestir sýni öðrum íbúum kjarnans tillitssemi. Hávaði eftir kl 23 er með öllu óheimill. Staðsetning er hér

Innritun er kl 16:00 og brottför kl 11:00.

Lausar dagsetningar má sjá í dagatalinu hér fyrir neðan. Vinsamlegast bíðið eftir staðfestingu frá okkur um að tímabilið sem óskað er eftir sé laust.

Loading...
 
-
Laust
 
-
Bókað
 
-
Í skoðun
·
 
-
Brottför/Koma

Nafn (required):

Email (required):

Símanúmer (required):

Komudagur (required):
...

Brottfarardagur (required):
...

Heildar verð með þrifum, fyrir valdar dagsetningar (required):
0,00 

Verð á þrifum (required):
0,00 

Cleaning Fee:

Fullorðnir (required):

Nánari skilaboð:

Ég er ekki vélmenni – skrifið stafina eins í gluggann To show CAPTCHA, please deactivate cache plugin or exclude this page from caching or disable CAPTCHA at WP Booking Calendar - Settings General page in Form Options section.