78fm glæsileg íbúð í nýlegu lyftuhúsi á Adeje, rétt fyrir ofan hraðbraut. Byggingarár 2018.
Gistirými fyrir 4-6 pers. og frítt WiFi. Í sameign hússins er infrared sauna, heitur pottur, líkamsrækt og sundlaug.
Tvö svefnherbergi annað með hjónarúmi og hitt með 2x 90cm rúmum sem hægt er að setja saman.
Tvö salerni með sturtu, og svalir meðfram stofunni og öðru herberginu, sófar og borð á svölum. Stofa með stórum svefnsófa þar sem tveir geta auðveldlega sofið. Fullbúið eldhús ásamt uppþvottavél. Borð og stólar í borðstofu.
Gengið er upp stiga þar sem þvottahúsið er og útgengt á 52fm einkasólþak. Borðstofu sófasett á terrazinu, gasgrill og sólbekkir.

























Lágmarks leigutími er ein vika og leiguverð misjafnt eftir árstíma. Frá 1.maí – 1. október er verðið 110€ nóttin + þrif. Á veturna er leiguverð 130€ nóttin + þrif.
Um jól & áramót er lágmarks leigutími 2 vikur, páska 10 dagar, og leiguverð 200€ nóttin + þrif.
Ætlast er til að gestir sýni öðrum íbúum kjarnans tillitssemi. Hávaði eftir kl 23 er með öllu óheimill. Staðsetning er hér
Innritun er kl 16:00 og brottför kl 11:00.
Lausar dagsetningar má sjá í dagatalinu hér fyrir neðan. Vinsamlegast bíðið eftir staðfestingu frá okkur um að tímabilið sem óskað er eftir sé laust.
