Sundlaug

Allt um Dome Kúluhús


  • Febrúar & mars 75€
  • Apríl 69€
  • Maí & júní 49€
  • Júlí & ágúst 59€
  • September 69€
  • Október 75€
  • Nóvember & Desember 89€

Einstakt tækifæri fyrir þá sem vilja brjóta upp fríið sitt á Tenerife og prófa eitthvað nýtt! Gisting í Dome (kúluhúsum) við Villa de Arico, sem er einungis í 40km fjarlægð frá Los Cristianos og Adeje. Í desember 2023 er eitt hús komið, og tvö til viðbótar væntanleg 2024.

Villa de Arico er fallegur smábær til fjalla og umhverfið allt dásamlegt og friðsælt. Mikið af gönguleiðum fyrir þá sem það kjósa, eða bara hægt að slaka á og njóta kyrrðarinnar í útilegu stemmningu á Tenerife.

Kúluhúsin eru í afgirtum einkagarði með sundlaug og hverju húsi fylgir sér baðherbergi. Inni í hverju húsi er stórt rúm, stjörnukíkir, kósý horn með 2 stólum og borði, ísskápur, kaffivél, örbylgjuofn og brauðrist ásamt helsta leirtaui. Ef fólk vill elda sér heitan mat þá er sameiginleg úti eldunaraðstaða með hellum og vaski.

Einnig er hægt að óska eftir að fá sendan morgunmat fyrir 12,50€ á mann. Óska þarf sérstaklega eftir því við bókun og morgunmatur borin fram til ykkar frá kl 08:00.

Til 1. nóvember 2024 er sérstakt kynningarverð einungis 75€ nóttin + þrif 50€. Um jól, áramót og páska er verðið 110€ pr nótt + þrif.

Villa de Arico er hér

Innritun er kl 15:00 og brottför kl 11:00, nema um annað sé samið.

Lausar dagsetningar má sjá í dagatalinu hér fyrir neðan. Vinsamlegast bíðið eftir staðfestingu frá okkur um að tímabilið sem óskað er eftir sé laust.

Calendar is loading...
-
Laust
 
-
Bókað
 
-
Í skoðun
·
 
-
Brottför/Koma

Nafn (required):

Email (required):

Símanúmer (required):

Komudagur (required):
...

Brottfarardagur (required):
...

Heildar verð með þrifum, fyrir valdar dagsetningar (required):
0,00 

Verð á þrifum (required):
0,00 

Cleaning Fee:  

Fullorðnir (required):

Nánari skilaboð eða sér óskir:

Ég er ekki vélmenni – skrifið stafina eins í gluggann captcha