Hér fyrir neðan eru svör við spurningum sem berast okkur hvað oftast til eyrna og því er þessi listi í stöðugri uppfærslu 😉
Fyrst ber að nefna nokkrar erlendar frétta síður sem eru áhugaverðar:
- Canarian Weekly – fréttasíða á ensku sem birtir helstu fréttir daglega
- Islas Canarias – Spænsk fréttasíða
- Whats On In Tenerife – fyrir partý þyrsta 😉
- ABC Tenerife er partý app, hverjir eru hvar… með lifandi tónlist? Til dæmis.
- Ég þarf bílstól(a) frá flugvellinum, er betra að bóka bíl fyrirfram og hjá hverjum er þá best að bóka bíl??
- Það eru ansi margar þjónustur á flugvellinum sem bjóða uppá fyrirfram pantaða leigubíla og erfitt að segja hver er “best”, en ef sett er td Tenerife Airport South Taxi í google leit þá koma upp mörg fyrirtæki sem bjóða upp á slíkt. Við vitum einnig að margir Íslendingar hafa notað þjónustuna frá ‘Tene Bíllinn’ sem má finna hér á Facebook.
- Hvernig er veðrið í febrúar??
- Auðvitað er aldrei hægt að spá til um veðrið langt fram í tímann á Tenerife frekar en annarsstaðar í heiminum 😅 en fyrir þá sem vilja fylgjast grant með veðri og vindum þá er Aemet Spænska ‘veður . is’ síðan 😉 veljið bæ úr listanum til að sjá veðurspá. AukaTips: Appið þeirra er meira notendavænt heldur en heimasíðan
- Ég er að BRÁÐNA! Er hægt að leigja loftkælingu?!?!
- Á Tenerife er ekki algengt að loftkælingar séu í íbúðum, því oftast er ekki þörf á því. Auðvitað geta komið tímabil yfir sumartímann þar sem fólki finnst það nauðsyn – ekki örvænta, það eru nokkur fyrirtæki sem leigja slíkan búnað ásamt allskonar öðru 😉 T.d. Spot On Holiday Hire og Holiday Hire Shop
- Hvar er góð íþrótta búð?
- Decathlon er bæði uppi á Adeje og í La Laguna fyrir norðan – þessi finnst okkur best
- Annars eru sunnan megin bæði Intersport, Sprinter og fleiri víða um svæðið. Best að googla hvað er næst þér
- Hvar get ég keypt gleraugu?
- Multiópticas og Labop hafa reynst okkur vel. Oft gefa gleraugnaverslanir sér 10-15 daga á afgreiðslu, þannig við mælum með að þið nýtið fyrstu dagana í gleraugnakaup. Multiópticas má finna víða, ein t.d. í Siam Mall.
- Hvar er Primark og hvernig kemst ég þangað?
- Eina Primark verslunin (þegar þetta er skrifað) er í verslunarkjarnanum El Meridiano í höfuðborginni Santa Cruz.
- Ef þú ert á bíl er lang best að setja Primark Santa Cruz inní google maps og forritið leiðir þig alveg ofaní bílakjallarann.
- Ef þú tekur strætó stoppa leiðir 110 og 112 rétt fyrir neðan El Meridiano.
- Strætó?
- Strætó á Canary eyjunum kallast GuaGua (borið fram VhaVha) og aðal stoppistöðvarnar merktar Estación de GuaGuas. Fyrirtækið heitir Titsa, linkur á heimasíðuna þeirra hér. Við hverja stoppistöð er QR kóði sem hægt er að skanna á símann sinn til að sjá hvaða strætisvagnar kom þar og hvenær.
- Hér má sjá verðlista þeirra á ensku -> Titsa verð
- Hvar er best að leigja bílaleigubíl?
- Við erum í samstarfi við bílaleigu sem má finna á síðunni okkar hér: Bílaleiga
- Er Sephora á Tenerife?
- Það er smá Sephora horn inni í El Corte Inglés í Santa Cruz
- Hvar kemst ég í gott tásu dekur?
- Við mælum hiklaust með Kínversku vinkonum okkar á Fañabe. Stofan heitir Shalom Ocean Spa og er núna á tveimur stöðum, ein í göngugötu hér og hin við strandlengjuna hér. Símanúmer til að panta er á linkunum en oft hægt að rölta við og panta á staðnum.
- Apótek?
- Apótek heita Farmacia og eru merkt með grænum krossi. Bara hægt að kaupa lyf í Farmacia.
- Heilsubúðir/Jurta apótek, kallast Parafarmacia og merkt með bláum krossi. Þau selja ekki lyf.
Á meðan við höldum áfram að vinna með þennan lista þá bendum við á herra Google – hann er farinn að vita ansi margt! 😉

