Fjölskyldu raðhús Miraverde


Glæsilegt 100 fermetra enda raðhús með lokuðum stórum einkagarði, allt á einni hæð og gistirými fyrir allt að 7 manns.

Staðsett í rólegu hverfi þar sem sameiginlegur sundlaugargarður er í miðju hverfinu um 300m göngufæri. Við sundlaugina er veitingastaður og bar þar sem hægt er að slaka á og njóta allan daginn. Þar eru einnig sólbekkir, stólar og snyrting.

Í íbúðinni er eldhús, stofa, neðri stofa/skáli með svefnsófa og 3 svefnherbergi. Tvö þeirra með tvöföldum rúmum og eitt með 90cm rúmi. 2 salerni með sturtu og 230fm einka garður.

Eldhús fullbúið með öllum helstu tækjum svo sem uppþvottavél, örbylgjuofni, kaffivél, brauðrist og fl. Annar búnaður: Barnarúm, handklæði, sængur, rúmföt, teppi, hárþurrka, sléttujárn, og viftur.

Þjónusta í næsta nágrenni: Matvörubúð, veitingastaðir, bakarí, apótek, kjötbúð. X-Sur verslunarmiðstöðin er í ca.10 mín göngufæri.

Lágmarks leigutími er ein vika og verðið 990€ pr viku + 120€ þrif í lok dvalar. Um jól, áramót og páska er leiguverð 1.300€ vikan + þrif. Mögulegt er að leigja þessa eign í lengri tíma td 2-3 mánuði og er verðið þá samningsatriði.

Innritun er kl 16:00 og brottför kl 10:30. Staðsetning er hér

Eigendur þessarar eignar nota hana mikið sjálf þannig oft er hægt að semja um daga til eða frá þó dagatalið segi að húsið sé bókað. Vinsamlegast bíðið eftir staðfestingu frá okkur um að tímabilið sem óskað er eftir sé laust.

Calendar is loading...
-
Laust
 
-
Bókað
 
-
Í skoðun
·
 
-
Brottför/Koma

Nafn (required):

Email (required):

Símanúmer (required):

Komudagur (required):
...

Brottfarardagur (required):
...

Heildar verð með þrifum, fyrir valdar dagsetningar (required):
0,00 

Verð á þrifum (required):
0,00 

Cleaning Fee:  

Fullorðnir (required): Börn (required):

Nánari skilaboð og aldur barna:

Ég er ekki vélmenni – skrifið stafina eins í gluggann captcha