Bungalow í El Madronal


Glæsilegt 75 fermetra nýstandsett raðhús með lokuðum garði sunnan við húsið, allt á einni hæð og gistirými fyrir 3-4.

Íbúðarsvæðið er með tveimur inngöngum, blanda af raðhúsum og blokk með
sameiginlegum garði með sundlaug. Við sundlaugina eru sólbekkir, stólar og snyrting.

Í íbúðinni er opið eldhús og stofa með stafrænu sjónvarpi og wifi.
Eldhús fullbúið með öllum helstu tækjum svo sem uppþvottavél, örbylgjuofni, kaffivél, brauðrist og fl. Hjónaherbergi með stórum fataskáp og 160 cm hjónarúmi og herbergi með 90cm rúmi (stækkanlegt í 120 cm). Þvottahúsið er í sama rými með rennihurð fyrir þvottavélinni. Sólstofa framan við stofu með svefnsófa.
Baðherbergi með baðkari og sturtu.

Annar búnaður: Handklæði, sængur, rúmföt, teppi, hárþurrka, sléttujárn, og viftur.

Í garði er borð, stólar, grill og sólbekkir.

Næg bílastæði í kringum eignina

Ath! Eftir klukkan 22 til 8 skal vera næði á svæðinu og tillitssemi í hvívetna.

Þjónusta í næsta nágrenni: Matvörubúð, veitingastaðir, bakarí, apótek, kjötbúð og
X Sur verslunarmiðstöðin í ca10 mín göngufæri.

Leiguverð er 595€ vikan +85€ þrif. Um jól, áramót og páska er leiguverð 760€ vikan + þrif. Mögulegt að leigja þessa eign í lengri tíma td 2-3 mánuði og er verðið þá 1.700€ á mánuði + loka þrif 100€, allir reikningar innifaldir.

Staðsetning er hér

Lausar dagsetningar má sjá í dagatalinu hér fyrir neðan. Vinsamlegast bíðið eftir staðfestingu frá okkur um að tímabilið sem óskað er eftir sé laust.

Calendar is loading...
-
Laust
 
-
Bókað
 
-
Í skoðun
·
 
-
Brottför/Koma

Nafn (required):

Email (required):

Símanúmer (required):

Komudagur (required):
...

Brottfarardagur (required):
...

Heildar verð með þrifum, fyrir valdar dagsetningar (required):
0,00 

Verð á þrifum (required):
0,00 

Cleaning Fee:  

Fullorðnir (required): Börn (required):

Nánari skilaboð og aldur barna:

Ég er ekki vélmenni – skrifið stafina eins í gluggann captcha