Uppgerð íbúð á góðum stað á Playa de las Americas.
Á fyrstu hæð er fullbúið eldhús með uppþvottavél og öllum helstu eldhús áhöldum, stofa með litlum svefnsófa og salerni. Verönd á jarðhæð út frá stofu.
Á efri hæð eru tvö svefnherbergi með tvöföldum rúmum, fataskápum og svölum. Baðherbergi með sturtu og þvottavél.
Háhraða internet er í íbúðinni.
Um 850 metrar eru niður að Troya ströndina, 1 km að Siam Mall og 1,3 km að Siam Park vatnsrennibrauta garðinum. Las Americas 18 holu golfvöllurinn er í 1,3 km fjarlægð. Staðsetning íbúðar er hér
















Leiguverð er 860€ vikan + 100€ þrif. Um jól, áramót og páska er leiguverð 180€ nóttin.
Lausar dagsetningar má sjá í dagatalinu hér fyrir neðan. Vinsamlegast bíðið eftir staðfestingu frá okkur um að tímabilið sem óskað er eftir sé laust.