2bdr-2bath-livingr

Fañabe íbúðir í langtímaleigu

Lágmarks leigutími eru 9 mánuðir og ekki hægt að festa íbúð nema minna en 2 mánuðir séu í komudag. Dýrahald er ekki leyft í blokkunum.

Íbúðirnar sem við bjóðum hér uppá eru í þremur blokkum sem allar hafa lyftu og lokaðan bílakjallara. Íbúðirnar eru allar í eigu sömu fjölskyldu, staðsettar á Adeje og í 5 mínútna göngufæri frá Fañabe ströndinni. Sameiginleg sundlaug er í garði sem haldið er í 25° allan ársins hring.

Í boði eru 1, 2, og 3ja svefnherbergja íbúðir og val um hvort bílastæði í kjallara sé leigt með eða ekki. Allar íbúðir eru rúmgóðar, bjartar og fallega innréttaðar, með rúmum, borðum, stólum, sófum, þvottavél og ísskáp en annar húsbúnaður fylgir ekki eins og sjónvarp, leirtau osfrv. Íbúðirnar henta því fullkomlega þeim sem hingað flytja með sína persónulegu muni.

Engir reikningar eru innifaldir í leigu. Greiða þarf 2 mánuði í tryggingu, fyrstu mánaðarleigu og einn mánuð í umsýslu gjald, samtals andvirði 4 mánaða leigu greidd í upphafi. Tveggja mánaða trygginguna fær fólk endurgreitt að fullu í lok leigutímans svo lengi sem allt er í lagi og íbúð skilað nákvæmlega eins og þegar fólk fékk hana.

Staðsetning er hér

ATH! Hér fyrir neðan má sjá DÆMI um íbúðirnar eftir stærðum og því ekki hægt að lofa að nákvæmlega þessar íbúðir séu lausar. Ódýrustu íbúðirnar eru auðvitað vinsælastar og oftast full bókaðar, verðin hér fyrir neðan eru því einungis til viðmiðunar.


Dæmi um íbúð með einu svefnherbergi

Allar eins svefnherbergja íbúðirnar eru með aðskildu eldhúsi, stofu/borðstofu og gangi að svefnherbergi og baðherbergi. Þvottahús út frá eldhúsi.

Eins svefnherbergja íbúðirnar eru frá 950€ á mánuði og allt að 1.550€ fyrir þakíbúðirnar (Penthouse). Stærð á bilinu 50-65m2 (fyrir utan svalir eða verönd)

Myndir sjást stærri þegar ýtt er á þær


Dæmi um íbúð með 2 svefnherbergjum og ýmist 1 eða 2 baðherbergjum

Bæði er hægt að fá þessar íbúðir með einu eða tveimur baðherbergjum. Allar tveggja svefnherbergja íbúðirnar eru annað hvort með tveimur svölum eða svölum og terraz.

Verð á íbúð með 2 svefnherbergjum og er frá 1.150€ – 1.600€ á mánuði.

Jarðhæð ódýrust og dýrari eftir því sem ofar er farið.


Dæmi um íbúð með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum

Þessar eru frá 1.250€ / 1.650€ á mánuði.

Íbúðirnar eru 120-125fm að stærð fyrir utan svalir.